Góða kvöldið góðir hálsar!
Sökum þess að netið hefur legið niðrí í Kaupmannahöfn hefur bloggleysið hrjáð okkur félagana hérna úti, mig klæjar í fingurna, og það er kominn tími til að klóra sér!
Það sem hefur gerst:
- Komnir í frábæra íbúð, með tveimum queen size rúmum, svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baðherbergi og dass af hundahárum.
- Fórum í Bakken Tívolíið á afmælinu mínu, það var af króknum
- Óli Björn Karls Dúason er kominn í kotið, hann sefur fyrir hönd mína og Aðalsteins þar sem við þurfum að vakna heldur betur snemma, hann er kominn með vinnu á Jolene bar í samvinnu við Dóru Takefúsa, og sökum sjarma Óla Bjarna er Dóra búin að gista heima hjá okkur seinustu viku.
- Jacob samstarfsmaður minn sagði upp, hann sendi yfirmanninum einfaldlega sms, “Ég er hættur, ég vil ekki vinna meira”. Þannig rúllar Jacob bara, hann er ekkert að flækja hlutina
- Ljóta er ennþá ljót
- Yfirmaðurinn er kominn úr fríi, hún er lítil, þybbin og frá Serbíu. Fyrir þá sem sjá fyrir sér sigurvegara í Eurovision árið 2007, litlu, serbnesku lesbíuna, þá er hún mjög lík henni, nema 3falt ómyndalegri.
- Hún sígórettar sig upp á 5 mínútna fresti, enda ekki sú chillaðasta í bransanum
- Fólkið sem vinnur á þessum stað finnst alveg rosalega áhugavert að fræðast um Ísland og maður bara “Jááááá, þetta er alveg besta land í heimi sko, mikið betra en Danmörk” (svo hlægjum við saman að því, þau augljóslega ekki sammála, hrokagikkir)
- Það er búið að vera rosalega mikil sól og fáránlega heitt á okkur. Ég hef ekki brunnið neitt, annað en hann Aðalsteinn minn. Hann sofnaði tvisvar á ströndinni með viku millibili. Það var eins og hann hefði málað á sig Þróttarabúninginn.
- Þorbjörg kom í seinustu viku, það var rosalega ljúft. Lifðum eins og konungshjón og öllu tjaldað. Borðuðum flottan mat, fórum í bíó, litum á áhugaverða staði og þá einna helst var dýragarðurinn. Þar sem maður sá frændur okkar, gírafa, fíla, apa, flóðhesta, ljónin, tígrisdýrin og alla félagana í skóginum, en það dýr sem skaraði fram úr var væntanlegur íslenski Ísbjörnin, eins tignarlegt dýr hef ég aldrei áður séð. Ég hlakka il að fara í húsdýragarðinn seinna og kíkja í heimsókn á vin minn.
- Sjónvarpið hérna er rosalega gott, óteljandi stöðvar með allskonar....maður þarf varla að fara úr húsi!
- Það er rosalega mikið af Íslendingum hérna, það er ekki hægt að tala illa um fólk sem maður er að labba framhjá eða eru á undan manni í röðinni
- Það er lika alveg magnað hvað íslendingum finnst merkilegt að hitta aðra íslendinga hérna úti...bara “Vóhh, við erum bara í sama landi!!!”
- Ég er að öðlast reynslu í eldamennsku, búinn að reyna að elda nokkrum sinnum í viku, ég býst við því að á næsta ári verður maður aðstoðarkokkur á Café Riis undir stjórn Báru frænku.
- Hafsteinn nokkur Bjarnason kemur í lok júlí og þá verður mikil gleði
- Ég er búinn að þvo þvott nokkrum sinnum með frábærum árangri, setti allt hvítt saman og svona basic, ekkert hlaupið eða neitt ;).
Núna kl 22:03 sitjum við Aðalsteinn inní stofu og horfum á Gordon Ramsey hrauna yfir einhverja hálfvita, Óli er í heimsókn hjá Birtu Austmann að sötra bjór og ætli maður geri ekki það sama svona rétt fyrir svefninn. Helgin framundan og hún verður sko ekki af verri endanum, þar sem annað kvöld munum við banka uppá hjá Stevie Wonder á Parken þjóðarleikvangi Dana. Það verður pííííípað!
Annars er bara rosa fínt að frétta frá okkur, við söknum Íslands en erum einnig að skemmta okkur konunglega, og umfram allt að læra, engin mamma til að halda í höndina á manni eða Þórdís Halla til að taka til eftir mann. Við sjáum um hvorn annan og gerum þetta bro-style.
Við þurfum að láta meira heyra í okkur, og eitt enn, það er ekkert rosalega gaman að blogga þegar enginn kommentar, þó það sé ekki nema einhver falleg hlý kveðja.
Vi höres
Grímur Sören Gunnarsson
Queen size fyrir drottningarnar.
ReplyDeleteBara like á þetta allt saman. Nema það að þú sért ekki búinn að setja rauðan sokk með öllum hvíta þvottinum og bleika sig upp, það er náttúrulega must þegar maður býr erlendis.
vuhú en skemmtilegt blogg. Þið eruð flottir!
ReplyDeleteog ég vil sjá mynd af þessu liði úr vinnunni!
ReplyDeleteFlott blogg, væri ekki á móti því að chilla bara eitthvað í dk núna.
ReplyDeleteHlökkum til að fá þig í hóp þeirra allra bestu á Café Riis á næsta ári!
ReplyDeleteÉg trúi því ekki að ég hafi haft gaman af því að lesa blogg, þið eruð ótrúlega flottir!
ReplyDeleteps. svo satt með hvað Íslendingum finnst merkilegt að hitta samlanda sína í Danmörku, minnir mig á þegar bróðir minn hnerraði þegar við vorum að versla í HM og einhver tók í öxlina á honum og sagði "GUÐ HJÁLPI ÞÉR!"(með aulalegu glotti)
BAM.
ReplyDelete