Það er bara ósköp venjulegur dagur hér á Palermovej. Klukkan er 14:10, ég er að borða rúgbrauð með spægipylsu að tala við Smára og mömmu á skype, Aðalsteinn er að taka reglulega eftir-vinnu-blundinn sinn, blund sem varir í góða 5-6 tíma, og Óli Björn er einnig sofandi, einfaldlega vegna þess að hann er Óli Björn.
Ég er yfirleitt einn vakandi á þessum tíma dags. Aðalsteinn fær ekki útborgað fyrr en á föstudaginn þannig að hann ætlar helst að reyna sofa af sér alla vikuna svo hann nái að spara og Óli Björn sefur á daginn og vakir á nóttinni eins og honum einum er lagið, Aðalsteinn hitti hann inní eldhúsi í morgun í góðu chilli þegar sá fyrrnefndi var á leiðinni í vinnuna.
Við Aðalsteinn skelltum okkur á Stevie Wonder í Parken um daginn, og það má með sanni segja að hann kom, SÁ, og sigraði. Hann var gjuðveikur. Gersamlega henti hverjum smellinum í grímuna á manni og maður lá óvígur eftir. Við ákváðum að kaupa miða í stúku í staðinn fyrir að standa með almúganum í einhverju svitabaði. Það vildi svo skemmtilega til að af svona 5000 manns í stúkunni voru ég og Aðalsteinn...og semi allt samfélag blindra í Danmörku, það er allt gott og blessað, nema maðurinn við hliðina á mér, sem var blindur, var alltaf að geispa framan í mig, og nánast blindaði mig með andfýlunni sinni.
Óli Björn er að vinna á fullu um helgar, gengur frábærlega, enda er hann í að ég held sinni fullkomnu vinnu. Á bar, á nóttinni, með mikilli tónlist...og hann er fullur, að fá borgað fyrir það held ég að sé bara draumur í dós. Við kíktum á hann í vinnunni um helgina og ég ef aldrei séð manneskju jafn dedicated vinnunni sinni.
Kærustusöknuður minn er heldur betur að segja til sín, þá aðallega svefnlega séð. Ég og Óli deilum rúmi og ég er ítrekað að varpa höndinni minni yfir hann, reyna að detta í kúr og svo í gærmorgun vaknaði Óli við að ég var að lauma hendinni minni í lófa hans, voða rómantískt, en auðvitað ómeðvitað...að ég held. Annars er Óli fínn sofi-félagi, hann er nánast alveg eins og þegar hann er vakandi. Ég var einu sinni hálfvakandi þegar Óli byrjaði að tala úr svefni og þá var hann bara segja hluti eins og "Æji, whatup?" "Baby" og "So osssum"
Ég er kominn á nýjan vinnustað og verð þar út þessa viku. Hann er ívið betri. Þar sem ég þarf ekki að mæta fyrr en kl 9 og er búinn kl 10. Í staðinn fyrir að mæta kl 6 og vera búinn kl 11 eins og á gamla staðnum, en kallinn verður ekki lengi í paradís þar sem eftir þessa viku þá er það bara back to bissness á gamla staðnum, með Mariu yfirmann andandi ofan í hálsmálið mitt.
En á föstudaginn kemur Hafsteinn 6 pack, hötum það ekki, þá verður eitthver snilld keyrð í gang.
Á morgun fer fagurt föruneyti kvennskælinga í útskriftarferð og langaði mig bara að óska þeim góðrar ferðar og góðrar skemmtunar þar sem þessi ferð mun vera lengi í minnum höfð. Yndislegur tími! Besa me el culo = Réttu mér kaldann...lærið þetta utan að!
Bið að heilsa ykkur, ost og fröllur!
Ps. Endilega reynið að commenta, þó ég hafi heyrt að það sé eitthvað vesenis :)
Sæli félagar!
ReplyDeleteTvær spurningar
1. Hvernig er veðrið?
2. Hver í andskotanum er þessi Ólu Björn?
Peace
Skemmtilegur pistill, en ég segi það enn og aftur að það væri skemmtilegt að sjá svona eins og eitt blogg frá Aðalsteini.
ReplyDeleteLiebe Grüsse!
p.s. Mig dreymdi í nótt að ég þyrfti að kaupa mér flugmiða til Kaupmannahafnar, án alls gríns. Standið þið nokkuð fyrir þessu?