Kamelåså?
Monday, July 26, 2010
Sekur!
Ég er yfirleitt einn vakandi á þessum tíma dags. Aðalsteinn fær ekki útborgað fyrr en á föstudaginn þannig að hann ætlar helst að reyna sofa af sér alla vikuna svo hann nái að spara og Óli Björn sefur á daginn og vakir á nóttinni eins og honum einum er lagið, Aðalsteinn hitti hann inní eldhúsi í morgun í góðu chilli þegar sá fyrrnefndi var á leiðinni í vinnuna.
Við Aðalsteinn skelltum okkur á Stevie Wonder í Parken um daginn, og það má með sanni segja að hann kom, SÁ, og sigraði. Hann var gjuðveikur. Gersamlega henti hverjum smellinum í grímuna á manni og maður lá óvígur eftir. Við ákváðum að kaupa miða í stúku í staðinn fyrir að standa með almúganum í einhverju svitabaði. Það vildi svo skemmtilega til að af svona 5000 manns í stúkunni voru ég og Aðalsteinn...og semi allt samfélag blindra í Danmörku, það er allt gott og blessað, nema maðurinn við hliðina á mér, sem var blindur, var alltaf að geispa framan í mig, og nánast blindaði mig með andfýlunni sinni.
Óli Björn er að vinna á fullu um helgar, gengur frábærlega, enda er hann í að ég held sinni fullkomnu vinnu. Á bar, á nóttinni, með mikilli tónlist...og hann er fullur, að fá borgað fyrir það held ég að sé bara draumur í dós. Við kíktum á hann í vinnunni um helgina og ég ef aldrei séð manneskju jafn dedicated vinnunni sinni.
Kærustusöknuður minn er heldur betur að segja til sín, þá aðallega svefnlega séð. Ég og Óli deilum rúmi og ég er ítrekað að varpa höndinni minni yfir hann, reyna að detta í kúr og svo í gærmorgun vaknaði Óli við að ég var að lauma hendinni minni í lófa hans, voða rómantískt, en auðvitað ómeðvitað...að ég held. Annars er Óli fínn sofi-félagi, hann er nánast alveg eins og þegar hann er vakandi. Ég var einu sinni hálfvakandi þegar Óli byrjaði að tala úr svefni og þá var hann bara segja hluti eins og "Æji, whatup?" "Baby" og "So osssum"
Ég er kominn á nýjan vinnustað og verð þar út þessa viku. Hann er ívið betri. Þar sem ég þarf ekki að mæta fyrr en kl 9 og er búinn kl 10. Í staðinn fyrir að mæta kl 6 og vera búinn kl 11 eins og á gamla staðnum, en kallinn verður ekki lengi í paradís þar sem eftir þessa viku þá er það bara back to bissness á gamla staðnum, með Mariu yfirmann andandi ofan í hálsmálið mitt.
En á föstudaginn kemur Hafsteinn 6 pack, hötum það ekki, þá verður eitthver snilld keyrð í gang.
Á morgun fer fagurt föruneyti kvennskælinga í útskriftarferð og langaði mig bara að óska þeim góðrar ferðar og góðrar skemmtunar þar sem þessi ferð mun vera lengi í minnum höfð. Yndislegur tími! Besa me el culo = Réttu mér kaldann...lærið þetta utan að!
Bið að heilsa ykkur, ost og fröllur!
Ps. Endilega reynið að commenta, þó ég hafi heyrt að það sé eitthvað vesenis :)
Thursday, July 15, 2010
Palermovej 3
Góða kvöldið góðir hálsar!
Sökum þess að netið hefur legið niðrí í Kaupmannahöfn hefur bloggleysið hrjáð okkur félagana hérna úti, mig klæjar í fingurna, og það er kominn tími til að klóra sér!
Það sem hefur gerst:
- Komnir í frábæra íbúð, með tveimum queen size rúmum, svefnherbergi, stofu, eldhúsi, baðherbergi og dass af hundahárum.
- Fórum í Bakken Tívolíið á afmælinu mínu, það var af króknum
- Óli Björn Karls Dúason er kominn í kotið, hann sefur fyrir hönd mína og Aðalsteins þar sem við þurfum að vakna heldur betur snemma, hann er kominn með vinnu á Jolene bar í samvinnu við Dóru Takefúsa, og sökum sjarma Óla Bjarna er Dóra búin að gista heima hjá okkur seinustu viku.
- Jacob samstarfsmaður minn sagði upp, hann sendi yfirmanninum einfaldlega sms, “Ég er hættur, ég vil ekki vinna meira”. Þannig rúllar Jacob bara, hann er ekkert að flækja hlutina
- Ljóta er ennþá ljót
- Yfirmaðurinn er kominn úr fríi, hún er lítil, þybbin og frá Serbíu. Fyrir þá sem sjá fyrir sér sigurvegara í Eurovision árið 2007, litlu, serbnesku lesbíuna, þá er hún mjög lík henni, nema 3falt ómyndalegri.
- Hún sígórettar sig upp á 5 mínútna fresti, enda ekki sú chillaðasta í bransanum
- Fólkið sem vinnur á þessum stað finnst alveg rosalega áhugavert að fræðast um Ísland og maður bara “Jááááá, þetta er alveg besta land í heimi sko, mikið betra en Danmörk” (svo hlægjum við saman að því, þau augljóslega ekki sammála, hrokagikkir)
- Það er búið að vera rosalega mikil sól og fáránlega heitt á okkur. Ég hef ekki brunnið neitt, annað en hann Aðalsteinn minn. Hann sofnaði tvisvar á ströndinni með viku millibili. Það var eins og hann hefði málað á sig Þróttarabúninginn.
- Þorbjörg kom í seinustu viku, það var rosalega ljúft. Lifðum eins og konungshjón og öllu tjaldað. Borðuðum flottan mat, fórum í bíó, litum á áhugaverða staði og þá einna helst var dýragarðurinn. Þar sem maður sá frændur okkar, gírafa, fíla, apa, flóðhesta, ljónin, tígrisdýrin og alla félagana í skóginum, en það dýr sem skaraði fram úr var væntanlegur íslenski Ísbjörnin, eins tignarlegt dýr hef ég aldrei áður séð. Ég hlakka il að fara í húsdýragarðinn seinna og kíkja í heimsókn á vin minn.
- Sjónvarpið hérna er rosalega gott, óteljandi stöðvar með allskonar....maður þarf varla að fara úr húsi!
- Það er rosalega mikið af Íslendingum hérna, það er ekki hægt að tala illa um fólk sem maður er að labba framhjá eða eru á undan manni í röðinni
- Það er lika alveg magnað hvað íslendingum finnst merkilegt að hitta aðra íslendinga hérna úti...bara “Vóhh, við erum bara í sama landi!!!”
- Ég er að öðlast reynslu í eldamennsku, búinn að reyna að elda nokkrum sinnum í viku, ég býst við því að á næsta ári verður maður aðstoðarkokkur á Café Riis undir stjórn Báru frænku.
- Hafsteinn nokkur Bjarnason kemur í lok júlí og þá verður mikil gleði
- Ég er búinn að þvo þvott nokkrum sinnum með frábærum árangri, setti allt hvítt saman og svona basic, ekkert hlaupið eða neitt ;).
Núna kl 22:03 sitjum við Aðalsteinn inní stofu og horfum á Gordon Ramsey hrauna yfir einhverja hálfvita, Óli er í heimsókn hjá Birtu Austmann að sötra bjór og ætli maður geri ekki það sama svona rétt fyrir svefninn. Helgin framundan og hún verður sko ekki af verri endanum, þar sem annað kvöld munum við banka uppá hjá Stevie Wonder á Parken þjóðarleikvangi Dana. Það verður pííííípað!
Annars er bara rosa fínt að frétta frá okkur, við söknum Íslands en erum einnig að skemmta okkur konunglega, og umfram allt að læra, engin mamma til að halda í höndina á manni eða Þórdís Halla til að taka til eftir mann. Við sjáum um hvorn annan og gerum þetta bro-style.
Við þurfum að láta meira heyra í okkur, og eitt enn, það er ekkert rosalega gaman að blogga þegar enginn kommentar, þó það sé ekki nema einhver falleg hlý kveðja.
Vi höres
Grímur Sören Gunnarsson
Wednesday, June 23, 2010
Hans Nansens Gård
Sko! Hans Nansens Gård er fyrirtæki sem er mjög svipað og Reykjavíkurborg, á hverri hæð er viss deild sem sér um eitthvað innan borgarinnar, boring completed. Húsið er á 7 hæðum og er starfsmönnum skipt niður á hæðir.
Það er mjög fyndið að vinna með fólkinu á þessum vinnustað. Þar sem hreingerningar er meira en bara vinna, heldur ástríða...eða ótakmörkuð hræðsla við yfirmanninn.....sem er ekki einu sinni á svæðinu!!!
Liðið sem vinnur á staðnum er eftirfarandi:
Við sex íslendingar, Grímur, Aðalsteinn, Davíð, Olga, Svandís og Fannar, venjulegt fólk...sem hefur nickname á allt hitt liðið.
Leikarinn: Reynslubolti sem hefur verið í hreingerningarbransanum í mörg ár, kann öll trikkin í bókinni, að þrífa bara nógu mikið að það rétt sleppur, mjög gjarn á að við notum góðan tíma í pásu og drekkur svart kaffi. Hann er frá Serbíu og talar dönsku með serbneskum hreim. Ekki nóg með það að maður er að berjast við að skilja dönskuna, hendið inn Serbneskum hreim, ég mana ykkur. Margur maðurinn er mögulega að hugsa, af hverju er hann kallaður leikarinn? Jú því Olgu fannst hann vera svo rosalega líkur einhverjum leikara á Íslandi, sem hún veit ekki hver er, en hann er líkur Stefáni Karli, en samt er Stefán Karl ekki leikarinn sem Serbinn er líkur, enginn veit neitt...hrikaleg saga!
Ljóta: Eins og nafnið gefur til kynna er þessi manneskja ekki þekkt fyrir fegurð eða eitthvað í þeim geira. Hún er alveg hrikalega ljót, ef ég væri svartur maður þá myndi ég horfa á hana og segja mjög ýkt og hátt: DAMN!!! That bitch is uuuuuugleeeehhh!. Hún er frá miðausturlöndunum og gengur um með eitthvað drasl um hausinn. Hún er með nef sem borað neðanjarðargöng milli Íslands og Vestmannaeyjar, og skreytir það með bláum neflokk. Hún er með syfjuaugu eins og hún sé alltaf þreytt. Yfirleitt þegar ófrítt fólk brosir þá skánar það yfirleitt aðeins, en ekki í hennar tilfelli, hún hverfur í ljótleika sínum. Svo er hún líka leiðinleg.
J Mix: Jacob...hvar á ég að byrja. Ég verð líklegast að vinna með honum í allt sumar, við tveir, saman, Holmes og Watson, Lewis and Clarke, JT og Timbaland, Stjáni Stuð og Soffía Sæta.
Jacob er 30 og hefur unnið í hreingerningum í 5 ár. Hann er pínulítið seintregur, hann er svona væg útgáfa af Magga Mix.
Við höfum unnið saman í heila viku og hann...
- gengur um og segir öllum að ég sé meðhjálparinn hans
- hann mætir stundum hálftíma fyrr, eða kl 5:30 til að ná betri afköstum, hann fær ekki borgað aukalega
- hann hvíslar yfirleitt þegar hann segir að við ætlum að sleppa að gera eitthvað
- sínir mér annað slagið myndir á símanum sínum, m.a. mynd af naktri teiknimyndarpersónu, hann hló létt með.
- býr hjá móður sinni því hann var rekinn útúr íbúðinni sinni þar sem hann hélt party með of hárri tónlist (svo hann segir)
- Hann kallar mig Island
- Hann tönglast alltaf á því hvað það er gott að vinna í svona byggingu, það var svo góð æfing að labba um, nema þegar kemur að því að fara milli hæða, þá tekur hann lyftuna undantekningarlaust. Síðan gerir hann stundum byceps curls með plastpoka af óhreinum tuskum.
Það er rosalega gaman að honum og ég sé fram á skemmtilegt sumar með honum.
En það kemur framhald seinna, við verðum að fara leggjast til rekkju, 4 tímar í að maður þurfi að vakna, þurftum að pakka niður í flýti þar sem við þurfum að fara úr íbúðinni hjá Yngva fyrir kl 12. Áfram halda flutningarnir!! En samt bara þangað til á laugardaginn þegar við förum í höllina!
Góða nótt kæru vinir
Sören og Nikolas
-
-
Monday, June 21, 2010
God morgen! God arbejdslyst ;)
Það kemur oft fyrir að þegar einhverjar frænkur og frændur ætla að keyra blogg í gang að þau gera fyrsta bloggið til að kynna þar sem er framundan, með vel völdum orðum og sleipum setningum. Svo gerist það að sú bloggfærslurnar verða ekki fleiri, að þessi einu skrif voru bara helvíti fín!
Þannig er það búið að líta út hjá okkur seinustu vikuna. Þannig er nefnilega mál með vexti að fyrst núna erum við komnir í netsamband og nú keyrum við þetta í gang!
Við félagarnir sitjum nú í íbúð meistarans Yngva Eiríks með netsamband og 13 going on 30 í sjónvarpinu á einni af 80 stöðvunum sem við erum með, þannig rúllar sjónvarpssamfélagið í Kóngsins K. Þetta er annað kvöldið okkar heima hjá honum en alla seinustu viku erum við búnir að dvelja heima hjá Davíð og Olgu Lilju, Verslunarskólaöðlingum sem vinna með okkur. Það er nefnilega þannig að Íslendingarnir sem eru hérna í bænum nánast bara Verslingar og ég, sem við hötum nú ekki, að geta dottið inn í samræður um 12:00 og snekkjur.
Við lendingu var strax farið í leiðangur að leita að hjólum. Þar sem ég var í vígahug eftir að óprúttinn aðili gekk bersersksgang i blokkinni okkar og tók hjólið hennar mömmu. Það tók okkur einungis 3 tíma af casual göngu að ná tveimur gæðahjólum. Ég er búinn að halda mínu hjóli síðan, nema hjólin hans Aðalsteins eru búin að hverfa tvisvar og hann er búinn að vera gómaður 1 sinni af stórum mössuðum félaga sem sem betur fer lét Aðalstein vera, eftir að hann sá líkamlegt atgervi hans.
Strax daginn eftir var komið að fyrsta vinnudeginum okkar, eða réttara sagt nóttina eftir. Vakna kl 5, eða kl 3 á íslenskum tíma. Mætti bara halda að maður væri sjómaður! Eeeeeen nei, maður var mættur kl 6 niðrí Hans Nansens Gård, náð í sérhannaðann stuttermabol merktan Kobenhagen Rengörning Service og dagurinn er hafinn. 5 tímar, sem er furðu fljótur að líða þegar maður er getur verið með Retro Stefson og Ultra Mega Technobandið Stefán í eyrunum.
Við þurfum að taka smá úttekt á starfsfólkinu sem er að vinna með okkur, þetta er eins og sirkus!
En við Aðalsteinn (Nikolas) ætlum að detta í seng. Vinna eftir 6 tíma, ég er að fara hjálpa einhverri Tailenskri konu sem ape-shitaði yfir liðið í dag vegna þess að henni vantaði hjálp. Vinna í fimm tíma, en svo hefst alvöru dagurinn, 22.júní 2010, afmæli Sörens, Gríms Gunnarssonar, planið er að fara í Tivoli, verja deginum þar og fara svo út að borða á Kinverska staðnum í Tivolíinu, þeir sem þekkja hann vita hvað ég meina þegar ég segi: Damn!
En nú er tæp mínúta í að strákurinn litli verði 20 ára í Danmörku en tveir tímar í að ég verði 20 ára á Íslandi! Það er alveg magnað hvernig þessi heimur virkar!!!
Venlig Hilsen
Sören og Nikolas