Monday, June 21, 2010

God morgen! God arbejdslyst ;)

Jæja kæru vinir!

Það kemur oft fyrir að þegar einhverjar frænkur og frændur ætla að keyra blogg í gang að þau gera fyrsta bloggið til að kynna þar sem er framundan, með vel völdum orðum og sleipum setningum. Svo gerist það að sú bloggfærslurnar verða ekki fleiri, að þessi einu skrif voru bara helvíti fín!

Þannig er það búið að líta út hjá okkur seinustu vikuna. Þannig er nefnilega mál með vexti að fyrst núna erum við komnir í netsamband og nú keyrum við þetta í gang!

Við félagarnir sitjum nú í íbúð meistarans Yngva Eiríks með netsamband og 13 going on 30 í sjónvarpinu á einni af 80 stöðvunum sem við erum með, þannig rúllar sjónvarpssamfélagið í Kóngsins K. Þetta er annað kvöldið okkar heima hjá honum en alla seinustu viku erum við búnir að dvelja heima hjá Davíð og Olgu Lilju, Verslunarskólaöðlingum sem vinna með okkur. Það er nefnilega þannig að Íslendingarnir sem eru hérna í bænum nánast bara Verslingar og ég, sem við hötum nú ekki, að geta dottið inn í samræður um 12:00 og snekkjur.

Við lendingu var strax farið í leiðangur að leita að hjólum. Þar sem ég var í vígahug eftir að óprúttinn aðili gekk bersersksgang i blokkinni okkar og tók hjólið hennar mömmu. Það tók okkur einungis 3 tíma af casual göngu að ná tveimur gæðahjólum. Ég er búinn að halda mínu hjóli síðan, nema hjólin hans Aðalsteins eru búin að hverfa tvisvar og hann er búinn að vera gómaður 1 sinni af stórum mössuðum félaga sem sem betur fer lét Aðalstein vera, eftir að hann sá líkamlegt atgervi hans.

Strax daginn eftir var komið að fyrsta vinnudeginum okkar, eða réttara sagt nóttina eftir. Vakna kl 5, eða kl 3 á íslenskum tíma. Mætti bara halda að maður væri sjómaður! Eeeeeen nei, maður var mættur kl 6 niðrí Hans Nansens Gård, náð í sérhannaðann stuttermabol merktan Kobenhagen Rengörning Service og dagurinn er hafinn. 5 tímar, sem er furðu fljótur að líða þegar maður er getur verið með Retro Stefson og Ultra Mega Technobandið Stefán í eyrunum.

Við þurfum að taka smá úttekt á starfsfólkinu sem er að vinna með okkur, þetta er eins og sirkus!

En við Aðalsteinn (Nikolas) ætlum að detta í seng. Vinna eftir 6 tíma, ég er að fara hjálpa einhverri Tailenskri konu sem ape-shitaði yfir liðið í dag vegna þess að henni vantaði hjálp. Vinna í fimm tíma, en svo hefst alvöru dagurinn, 22.júní 2010, afmæli Sörens, Gríms Gunnarssonar, planið er að fara í Tivoli, verja deginum þar og fara svo út að borða á Kinverska staðnum í Tivolíinu, þeir sem þekkja hann vita hvað ég meina þegar ég segi: Damn!

En nú er tæp mínúta í að strákurinn litli verði 20 ára í Danmörku en tveir tímar í að ég verði 20 ára á Íslandi! Það er alveg magnað hvernig þessi heimur virkar!!!

Venlig Hilsen

Sören og Nikolas

No comments:

Post a Comment