Jæja, nú eru tæpir sjö tímar í að við Aðalsteinn Stefánsson leggjum í hann í tveggja og hálfs mánaðar dvöl í Kaupmannahöfn. Miklar pakkanir hafa verið í dag, ein taska fyrir föt, önnur fyrir öll ofnæmislyfin, og ég segi með stolti að þetta er að fara gerast!
En nú eru nýjir tímar, ferskir fingur og frjór hugur. Við verðum komnir til Köben um hádegið og mætum nánast beint í Danmörk vs Holland á HM, vel séð. Síðan bara að fá vinnuleyfi (vonandi, ef ekki þá er þetta mögulega mesta skita sem til er) og svo bara vinna bright and early þriðjudagsmorgun kl 6!
Við vonum að þetta blogg muni veita ykkur gleði og dægrarstyttingu og að þið fáið danska líferni okkar frænda beint í æð.
Nú er komið að því, seinasta bubble-baðið í tvo og hálfan mánuð, kertaljósin kveikt, baðsöltin á sínum stað og gúmmíöndin syndir hægt frá einum bakkanum yfir á hinn. Góða nótt, og sjáumst
í Köben!
http://www.youtube.com/watch?v=s-mOy8VUEBk - létt danskt grín ;)
Kv Søren og Nikolas
No comments:
Post a Comment