Wednesday, June 23, 2010

Hans Nansens Gård

Nú er komin meira en vika sem við höfum unnið í Hans Nansens Gård á vegum Kobenhavns Rengörning Service og hér kemur létt úttekt á vores arbejde!

Sko! Hans Nansens Gård er fyrirtæki sem er mjög svipað og Reykjavíkurborg, á hverri hæð er viss deild sem sér um eitthvað innan borgarinnar, boring completed. Húsið er á 7 hæðum og er starfsmönnum skipt niður á hæðir.

Það er mjög fyndið að vinna með fólkinu á þessum vinnustað. Þar sem hreingerningar er meira en bara vinna, heldur ástríða...eða ótakmörkuð hræðsla við yfirmanninn.....sem er ekki einu sinni á svæðinu!!!

Liðið sem vinnur á staðnum er eftirfarandi:

Við sex íslendingar, Grímur, Aðalsteinn, Davíð, Olga, Svandís og Fannar, venjulegt fólk...sem hefur nickname á allt hitt liðið.

Leikarinn: Reynslubolti sem hefur verið í hreingerningarbransanum í mörg ár, kann öll trikkin í bókinni, að þrífa bara nógu mikið að það rétt sleppur, mjög gjarn á að við notum góðan tíma í pásu og drekkur svart kaffi. Hann er frá Serbíu og talar dönsku með serbneskum hreim. Ekki nóg með það að maður er að berjast við að skilja dönskuna, hendið inn Serbneskum hreim, ég mana ykkur. Margur maðurinn er mögulega að hugsa, af hverju er hann kallaður leikarinn? Jú því Olgu fannst hann vera svo rosalega líkur einhverjum leikara á Íslandi, sem hún veit ekki hver er, en hann er líkur Stefáni Karli, en samt er Stefán Karl ekki leikarinn sem Serbinn er líkur, enginn veit neitt...hrikaleg saga!

Ljóta: Eins og nafnið gefur til kynna er þessi manneskja ekki þekkt fyrir fegurð eða eitthvað í þeim geira. Hún er alveg hrikalega ljót, ef ég væri svartur maður þá myndi ég horfa á hana og segja mjög ýkt og hátt: DAMN!!! That bitch is uuuuuugleeeehhh!. Hún er frá miðausturlöndunum og gengur um með eitthvað drasl um hausinn. Hún er með nef sem borað neðanjarðargöng milli Íslands og Vestmannaeyjar, og skreytir það með bláum neflokk. Hún er með syfjuaugu eins og hún sé alltaf þreytt. Yfirleitt þegar ófrítt fólk brosir þá skánar það yfirleitt aðeins, en ekki í hennar tilfelli, hún hverfur í ljótleika sínum. Svo er hún líka leiðinleg.

J Mix: Jacob...hvar á ég að byrja. Ég verð líklegast að vinna með honum í allt sumar, við tveir, saman, Holmes og Watson, Lewis and Clarke, JT og Timbaland, Stjáni Stuð og Soffía Sæta.
Jacob er 30 og hefur unnið í hreingerningum í 5 ár. Hann er pínulítið seintregur, hann er svona væg útgáfa af Magga Mix.
Við höfum unnið saman í heila viku og hann...
- gengur um og segir öllum að ég sé meðhjálparinn hans
- hann mætir stundum hálftíma fyrr, eða kl 5:30 til að ná betri afköstum, hann fær ekki borgað aukalega
- hann hvíslar yfirleitt þegar hann segir að við ætlum að sleppa að gera eitthvað
- sínir mér annað slagið myndir á símanum sínum, m.a. mynd af naktri teiknimyndarpersónu, hann hló létt með.
- býr hjá móður sinni því hann var rekinn útúr íbúðinni sinni þar sem hann hélt party með of hárri tónlist (svo hann segir)
- Hann kallar mig Island
- Hann tönglast alltaf á því hvað það er gott að vinna í svona byggingu, það var svo góð æfing að labba um, nema þegar kemur að því að fara milli hæða, þá tekur hann lyftuna undantekningarlaust. Síðan gerir hann stundum byceps curls með plastpoka af óhreinum tuskum.

Það er rosalega gaman að honum og ég sé fram á skemmtilegt sumar með honum.

En það kemur framhald seinna, við verðum að fara leggjast til rekkju, 4 tímar í að maður þurfi að vakna, þurftum að pakka niður í flýti þar sem við þurfum að fara úr íbúðinni hjá Yngva fyrir kl 12. Áfram halda flutningarnir!! En samt bara þangað til á laugardaginn þegar við förum í höllina!

Góða nótt kæru vinir

Sören og Nikolas
-
-

2 comments:

  1. Hej, hej!
    Hér er þitt fyrsta comment!

    -Vá hvað ég var lengi að komast að því hvernig ætti að kommenta á þetta, SHIT!!
    Vonandi gengur allt vel hjá þér besti!
    Sakn Sakn!

    Gunnz

    ReplyDelete
  2. Ég var og er löngu búinn að lesa þetta blogg og vil því vitna í Aðalstein og segja:

    "Þetta sökkar."

    p.s. Þið eruð ágætir.

    ReplyDelete